Bolvíkingar fæddir 1983
Kennarar blogga
18.07.2009 21:55:04 / vikari

Jæja...

;):$Hvað er að frétta??
á ekkert að fara að ske neitt??:haha:
langar að fara að hittast aftur....:p
Kolla og Jónsi?? 8|
halló??
8)

:d

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 12:44:13 / vikari

Frábært Reunion!

Elsku krakkar,,,
Takk æðislega fyrir síðast.. Þetta var rosalega gaman og verður að endurtaka sig aftur bráðlega.. Við verðum að halda þessu gangandi..

Svo væri gaman að fá að sjá myndrnar hjá fólkinu sem voru með myndavélar:)
Hver vill taka það að sér að halda næsta hitting?

Kv. Dagný og Birna

» 12 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 19:53:13 / vikari

Planið fyrir laugardaginn 18. Október

Hérna kemur "The Planið " fyrir Reunionið á laugardaginn þann 18. Október næstkomandi. 


* Við ætlum að mæta stundvíslega kl. 18:00 á Vitabarnum og borða saman.
* Eftir dinnerinn skellum við okkur í diskókeilu í Keiluhöllinni og eigum við pantaðar brautir kl 20:00 og áætlað er að við séum í ca. klukkutíma.
* Eftir keiluna hefur Atli Már boðið okkur í bekkjarparty að heimili hans við Bólstaðarhlíð 23 a. þar sem party-stemmarinn verður í hámarki.
* Svo er það bara óvissan eftir það.

Það kostar ca. 1000 kall á mann í keiluna.

Við viljum byðja ykkur um að commenta símanúmerin ykkar við þessa bloggfærslu svo hægt sé að reka á eftir ykkur ef einhver er seinn! Við missum keilubrautirnar ef við komum 9 mín of seint.

Þeir sem ætla bókað mál að láta sjá sig eru:
Dagný
Birna
Atli Már
Kalli
Kolla
Lísa
Ævar
Þórir
Ásta María
Sunna Kamilla
Hjörtur
Mæja
Daniel Steinarr (rauði)
Sigga
Jónsi
Ivar

Þeir sem ætla að reyna að komast eru:
Magnús Atli
Sveinbjörn
Halla Katrín

Þeir sem komast ekki eru:
Eva
Auja
Halldóra

Er ég að gleyma einhverjum?


ÞAÐ ER SKILDA AÐ KOMA MEÐ:
* Góða skapið.
* Peninga.
* Myndavél.
* Bús (djús, gos eða áfengi).

Endilega verið í sambandi við okkur ef það er einhvað vesen.
Dagný: 843-0000
MsN: dagnyjonsdottir@hotmail.com
EÐA
Birnu: 868-3040
MsN: birna_p@hotmail.com

Hlökkum til að sjá ykkur.
Kv. Dagný og Birna

P.S. Ekkert Vesen Eða Rugl!


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 11:03:12 / vikari

Halló, Halló!

Hverjir eru það sem ætla að koma á þetta REUNION?

» 15 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 09:06:04 / vikari

REUNION!

Jæja, gott fólk.
Við ætlum að hittast laugardaginn 18. október 2008!
Er þið ekki með einhverjar hugmyndir um hvað við eigum að gera?
Endilega commentið!
Kv. Dagný

» 19 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 09:27:21 / vikari

Núna skal það gerast!

Oki krakkar.
Núna skal það gerast!
Það er löngu komin tími á hitting hjá okkur. Ég legg til að við reynum að hittast hérna í RVK því að það eru svo fáir í Bolungarvík-city.
Ég legg til að við reynum að hittast um miðjan OKTÓBER. Það er þá góður tími fyrir þá sem eru í vinnu og svoleiðis að skipuleggja sig og fá frí.
Hvernig lýst ykkur á það?

Ég veit að það eru ekki allir sem voru með okkur í bekk sem vita af þessari síðu en það er um að gera að reyna að ná í alla.

Kv. Dagný

» 20 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 00:17:11 / vikari

Halló Halló

Hæ... Vá hvað allir eru geggjað virkir í þessum bekk.. alltaf eitthver að skrifa eitthvað og svakalegir hittingar og allt... NOT....8| Helló.. á ekkert að fara að gerast.. þetta gengur ekki svona.. það virðist vera áhugi fyrir hitting en ekkert er framhvæmt.. Why???' koma svo og gerum eitthvað....

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 00:43:58 / vikari

Árið 2008...

... er tilvalið í hitting !!

Ég heiti Birna Hjaltalín Pálmadóttir og var, fyrir þá sem ekki vita, í fyrsta og síðasta bekk Grunnskóla Bolungarvíkur. Ég bý núna í víkinni góðu með son minn, Einar Margeir, sem verður 3 ára í júlí. Stefnan er að klára frumgreinadeild hérna fyrir vestan næsta haust. Ég flutti til keflavíkur haustið 2007 og fór í frumgreinadeild í Keili sem var æði, keflavík var það hins vegar ekki og þess vegna er ég komin aftur heim. Mæli ekki með því sk...bæli. Sama hvað ég reyni að fara héðan þá kem ég alltaf skríðandi heim aftur.... lame, hmm eða ekki... svo eru takkarnir m,a og ð bilaðir á lyklaborðinu. (nauðsynlegar upplýsingar)

En, að máli málana...

Ég held að allir séu sammála um að þessi árgangur er frekar ósamheldin og glataður... miðað við alla hina. Mér finnst við ættum að breyta því. Hljómar neikvætt en er satt engu að síður !

Við skipulögðum frekar lélegan hitting hérna fyrir vestan í sumar, það mættu 7 eða 8. Lame mæting en samt var rosa gaman !

Ykkur finnst kannski ósanngjarnt að allir eigi að koma vestur en það er hálf kjánalegt að halda bekkjarmót/hitting í rvk, sérstaklega og eiginlega bara því að við vorum saman í bekk í Bolungarvík.

Hvernig væri nú að ákveða tíma, eyða smá pening og skella sér vestur í þeim tilgangi að hitta gömlu bekkjarfélagana ? Við sem búum hérna núna gætum þá skipulagt eitthvað geeeðveikt sem öllum á eftir að finnast skemmtilegt. LOFA !

Skelli könnun um þetta mál hér til hliðar og krefst þess að þið kjósið

ég krefst líka kommenta á þessa færlsu...ég er kona sem krefst....

með þeim orðum kveð ég að sinni

Birna


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 20:34:56 / vikari

HELLÓ!!

 Halló allir og gleðilegt nýtt ár.!!

 Ég get nú ekkert mikið sagt um það sem er að gerast í mínu lífi núna.

 Ég átti að vera að fljúga til Kanarí núna en við komum vestur í staðinn

 af því að við vildum frekar vera hér og fara í jarðarför hjá Hödda afa.

 Er bara búin að vera að undirbúa það núna. Áramótin voru góð, var með

 strákana mína hjá mér og það var rosa fjör að skjóta upp. (rok og rigning)

 Vona að það gerist eitthvað skemmtileg fljótlega hjá mér. Var svo sem að 

 spá hvort maður ætti að fara að læra eitthvað. Veit bara ekki hvað?

 En allavega.. Ég kveð núna og vona að það verði almennilegur hittingur

 fljótlega..... BÆBÆ  Maja


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 02:12:59 / vikari

Fréttir og hvaðeina

75% lesenda vill halda síðunni áfram. Frábært. Um að gera að koma þá með e-ð... eins og plana næsta hitting:)

Eins og flestir vita... amk þeir sem lesa síðuna e-ð, þá átti ég stelpu í október. Hún hefur fengið nafnið Signý. Yndislegt ævintýri og mikill gleðigjafi þessi stelpa!

Væri gaman að þið hin (ekki Kamilla og Kalli) mynduð koma með helstu fréttir úr ykkar lífi! 

Mitt líf einkennist af því að skipta um bleyjur og brjóstagjöf þessa dagana svo að ég hef ekki mikið að segja. Veit ekkert hvað gerist þegar fæðingarorlofinu lýkur, enda hef ég ár í að hugsa það :)

Koss og knús á línuna... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 15:21:13 / vikari

HALLÓ!?

Hvernig er þetta, er ekkert að frétta af fólki eða er enginn sem skoðar þessa síðu lengur?!

Jæja, hér er smá update: Ásta María er búin að eignast litla dóttur (27.október '07).

Annars veit ég ekki neitt, ef þið eruð þarna enn, endilega skrifið smá línu um hvað er að gerast í ykkar lífi.

Bestu kveðjur að Vestan

Kamilla


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 14:53:38 / vikari

Smá fréttir frá Kamillu

Hæhæ, þið fáu sem kíkið inn á þessa síðu reglulega.

Mig langaði að setja smá inn um hvað ég hef verið að hafast að undanfarið.

Þannig er það að ég er búin með námið mitt, þ.e.a.s. Lífeindafræði og var að útskrifast úr því nú á dögunum. Ég var svo heppin að fá framtíðarvinnu á Spítalanum á Ísafirði og er því flutt heim í Víkina. Endilega bjallið í mig ef þið eigið leið hjá ;)

Bestu kveðjur

Kamilla


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 10:44:47 / vikari

Hæhó

Hvernig er það? Ætlar enginn að skrifa um hvernig fór með hittinginn eða man enginn eftir honum? Endilega setjið inn einhverjar myndir þannig að við sem komumst ekki höfum eitthvað að skoða ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 10:42:17 / vikari

Sást til Karls og Kamillu

Hehehe... ég hélt að það væri verið að tala um Karl Fannar og Sunnu Kamillu;)

Karl og Kamilla sáust í Bolungarvík- Frétt á BB.IS

Á einhver myndir síðan í lokahófinu eftir samræmduprófin og væri til í að senda þau í e-mail til mín? Kv. Ásta María (Ps. myndir frá öðrum viðburðum úr Grunnskóla væru líka vel þegnar:))!

Afsakið mjög lélegan húmor hjá mér þessa dagana:) sbr. frétt að ofan!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 23:52:04 / vikari

Nýjustu upplýsingar

Þurfum ekkert að borga fyrir Kjallarann, það verður spilavist uppi og við fáum að vera niðri í koníaksstofunni með kertaljós og arinneld, tilboð á barnum! Eru ekki allir sáttir og í gúddí fíling:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 11260